Nám í flugumferðarstjórn
Nám flugumferðarstjóra
Grunnnám
Nemandi sem hefur nám í flugumferðarstjórn byrjar ávallt sinn námsferil á grunnnámskeiði í flugumferðarstjórn. Í ágúst 2008 var ákveðið að grunn- og réttindaþjálfun í flugumferðarstjórnun fari inn í almenna skólakerfið. Þessir skólar eru Flugskóli Íslands/Fjöltækniskólinn og Keilir, þeir sem hafa áhuga á grunnnámi í flugumferðarstjórn er bent á að snúa sér til framangreindra skóla til að fá nánari upplýsingar um námið.
Flugstoðir munu eftir sem áður vera með framhaldsnám til starfsréttinda í flugumferðarstjórn. Nemendur til framhaldsnáms verða framvegis valdir úr hópi þeirra sem ljúka grunnnámi í almenna skólakerfinu. Starfsréttindanám fer að miklu leyti fram í flugstjórnarmiðstöð og flugturnum og takmarkar það fjölda nema sem Flugstoðir geta tekið í nám hverju sinni. Fjöldi nema í réttindanámi hjá Flugstoðum ohf miðast við þarfir fyrirtækisins.
Fyrirspurnir sendist til ingibjorgb@isavia.is
Réttindanám
Að grunnnámi loknu hefst réttindanám nemans. Mismunandi er hvort nemandi fer í flugturnsnám í Reykjavík eða Keflavík eða í nám í flugstjórnarmiðstöð Reykjavíkur. Fer það eftir vöntun á flugumferðarstjórum á þessa vinnustaði. Réttindanám er einnig bæði bóklegt og verklegt.
Bóklegt réttindanám
Fer fram í kennslustofu frá klukkan 8 - 16 alla virka daga í fjórar til sex vikur. Námsefnið er sérhæft fyrir hver réttindi og yfirgripsmikið. Lýkur með prófi - 75% lágmarkseinkunn.
Verklegt réttindanám
Fer fram á tveimur stöðum: Í hermi og á vinnustað.
Í hermi frá kl. 8 - 16 í sex til átta vikur sem dreifast á námstímanum. Þar eru almennar vinnuaðferðir þjálfaðar og einnig fer fram þjálfun í mikilli umferð og neyðartilfellum.
Á vinnustað er unnið á vöktum með starfsþjálfara sem er starfandi flugumferðarstjóri og hefur hlotið sérþjálfun í að kenna á vinnustað. Tekur átta til tólf mánuði fyrir hver réttindi.
Til að nemandi öðlist réttindi sem flugumferðarstjóri þarf hann að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
75% lágmarkseinkunn á skriflegu prófi
Gott gengi í verklegum æfingum í hermi
Þjálfari á vinnustað samþykki að nemi sé hæfur til að fara í próf
Standast verklegt lokapróf í hermi/vinnustað
Lengd náms
Nám í flugumferðarstjórn í heild sinni tekur allt að fimm ár með vinnu. Fyrstu réttindum flugumferðarstjóra er þó yfirleitt náð eftir átján til tuttugu og einn mánuð frá upphafi náms.
Laun eru ekki greidd á námstímanum fyrr en fyrstu réttindum er náð. Hins vegar greiðir Flugstoðir uppihald (þ.e. húsnæði og fæði) nemenda á námskeiðum sem haldin eru erlendis, auk ferðakostnaðar. Þá eru námskeiðagjöld í flugumferðarstjórn greidd af Flugstoðum ohf. ohf.
