Reykjavíkurflugvöllur
Nýjar skipulagstillögur
Í mars 2009 voru kynntar nýjar skipulagstillögur fyrir Reykjavíkurflugvöll.
Auglýsing um skipulagsreglur fyrir Reykjavíkurflugvöll (PDF)
Reykjavíkurflugvöllur skipulagsreglur Hindrunarfletir II
Reykjavíkurflugvöllur skipulagsreglur Hindrunarfletir III
Reykjavíkurflugvöllur skipulagsreglur I
Þjónustutími
Þann 1. mars 2009 breyttist þjónustutími Reykjavíkurflugvallar, þjónusta að degi til er eins og áður, en á tímabilinu frá kl. 23:00 til 07:00 þarf að biðja sérstaklega um þjónustu fyrir hvert flug. Eins og áður er opið fyrir sjúkra- og neyðarflug, og óska þarf um þjónustu fyrir hvert flug. Vegna beiðni um þjónustu fyrir annað flug sjá handbók flugmanna. Sjá einnig gjaldskrá.
Daglegur þjónustutími 07:00 - 23:00
Laugardaga, sunnudaga, og almennir frídagar.
Næturtakmarkanir:
Frá 23:00 til 0700 (0800 um helgar og á almennum frídögum) gilda eftirfarandi takmarkanir:
A. Lendingar og flugtök ekki leyfð nema fyrir sjúkra- og neyðarflug, samþykkt áætlunarflugi og loftförum ríkisins.
B. Notkun "knývendis" og "ground fine" í lendingu ætti að vera í lágmarki.
NOTAM vegna breytts opnunartíma á Reykjavíkurflugvelli.
Almennt
Áætlunarflug frá Reykjavík er á 15 viðkomustaði á landsbyggðinni, og utanlands til Færeyja og Grænlands. Ennfremur er leiguflug frá Reykjavíkurflugvelli. Ýmsir flugrekendur bjóða leiguflug frá Reykjavíkurflugvelli.
Landhelgisgæslan er með bækistöð á Reykjavíkurflugvelli. Landhelgisgæslan fer m.a. með ábyrgð og yfirstjórn á leitar og björgunarþjónustu við sjófarendur á hafsvæðinu umhverfis Ísland, í samvinnu við innlenda og erlenda aðila. Landhelgisgæslan annast bjarganir og sjúkraflutninga á landi sé þess óskað og aðstoðar þá aðila sem fara með ábyrgð og yfirstjórn á leitar- og björgunarþjónustu vegna flugs á landi eða á sjó.
Reykjavíkurflugvöllur hefur rekstrarleyfi til ársins 2016 skv. gildandi borgarskipulagi og er meginflugvöllur innanlandsflugs og varaflugvöllur Keflavíkurflugvallar.
Kennslu og æfingaflug
Þrír flugskólar eru með starfsemi á Reykjavíkurflugvelli; Geirfugl, Flugskóli Helga Jónssonar og Flugskóli Íslands.
Flugvallarsvæðið
Fjöldi stórra og að sumu leyti sérhæfðar byggingar eru á svæðinu. Má þar nefna flugturn, flugstjórnarmiðstöð og ýmsar þjónustubyggingar Flugstoða, flugskýli Flugstoða, Flugfélags Íslands, Landhelgisgæslu og ýmissa annarra flugrekenda.
Stærð flugvallarsvæðis er 150 ha.
Framtíðarstaðsetning Reykjavíkurflugvallar
Samráðsnefnd á vegum samgönguráðuneytis og Reykjavíkurborgar vann að úttekt á framtíðarstaðsetningu Reykjavikurflugvallar.
Efst er skýrsla nefndarinnar en fyrir neðan eru skýrslur sérfræðihópa sem könnuðu einstök svið verkefnisins.
Reykjavíkurflugvöllur - úttekt á framtíðarstaðsetningu
ParX - Skýrsla
Hönnunar - Skýrsla
NLR - Skýrsla 1 áfangi
NLR - Skýrsla 2. og 3. áfangi
Samgöngumiðstöðvar - Skýrsla
Lóð samgöngumiðstöðvar
Kort
Kort með svæðaskiptingu og hliðum á Reykjavíkurflugvelli (júlí 2007)
Loftmynd (Google map) af flugvellinum.
Aðgangur að Reykjavíkurflugvelli
Umsókn um aðgang að Reykjavíkurflugvelli.
Reglur frá Flugmálastjórn Íslands um aðgangsstýringu, akstur og umferð um Reykjavíkurflugvöll.
Flugslysaáætlun
Flugslysaáætlun Reykjavíkurflugvallar (júlí 2007)
Flugmálahandbókin
Upplýsingar úr AIP - Flugmálahandbókinni
Fróðleikur um Reykjavíkurflugvöll
Úr Wikipediu - frjálsa alfræðiritinu
