Flugstoðir.is - Hlutverk og markmið

Um Flugstoðir ohf.

Hlutverk Flugstoða

Hlutverk Flugstoða ohf. er að annast rekstur og uppbyggingu allra flugvalla og lendingarstaða á Íslandi, annarra en Keflavíkurflugvallar. Einnig annast Flugstoðir alla flugleiðsöguþjónustu sem Ísland veitir fyrir alþjóðlegt flug og innanlandsflug.

Stefnumið Flugstoða
Við viljum tryggja að flugöryggi sé í samræmi við viðurkenndar öryggiskröfur og aðferðir, að flugvernd sé fullnægjandi og að starfsemi félagsins njóti viðurkenningar á innlendum sem alþjóðlegum vettvangi. Við styðjum við almenna flugstarfsemi á Íslandi og stuðlum að því að flugstarfsemi dafni hér á landi í sátt við samfélagið með sérstakri áherslu á umhverfismál. Við viljum efla þekkingu og færni starfsmanna okkar og leggjum á það áherslu að skapa þeim gott starfsumhverfi. Flugstoðir vilja styðja og efla starfsemi í samfélaginu, sem er mikilvæg vegna kjarnastarfsemi félagsins eða er því til vegsauka.

Mannauður
Hjá Flugstoðum ohf. starfa  um 230 manns. Lögð er áhersla á að fyrirtækið hafi jafnan á að skipa hæfu starfsliði með góða menntun og reynslu. Stuðlað verði að frekari menntun og þjálfun starfsmanna ásamt því að efla góðan starfsanda og liðsheilHöfuðstöðvar Flugstoða í Reykjavíkd

Opnunartími afgreiðslunnar í flugturni Flugstoða og afgreiðslunnar í flugstjórnarmiðstöð Flugstoða er frá 9:00 - 16:00. 

Heimilisfang Flugstoða er:
Reykjavíkurflugvöllur
101 Reykjavík

Kennitala Flugstoða er:
670706-0950

Flugmálastjórn Íslands hefur umsjón með stjórnsýslu og eftirliti flugmála á Íslandi. 


 

Flugstoðir ohf.  ·  Reykjavíkurflugvelli  ·  Sími +354 424 4000  ·  Fax +354 424 4001  ·  Almennur fyrirvari  ·  Hafðu samband